Loksins einhver úr röðum fólksins

Ég fagna þessari ákvörðun Jóns Geirs. Smile

Loksins kemur einhver sem er úr röðum fólksins.

Ég vona að stjórnmálin nái ekki að spilla honum.


mbl.is Geir Jón gefur kost á sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Maðurinn hefur ekki séð ástæðu til að segja sig úr sjálfstæðisflokknum... þannig að hann getur bara verið samdauna með honum.

Allir heiðvirðir menn myndu segja sig úr sjálfstæðisflokknum..ja, og 4flokknum.

DoctorE (IP-tala skráð) 23.2.2012 kl. 10:40

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sjálfsagt er Geir Jón hinn mætasti maður.  En það hafa margir á undan honum reynt að breyta klíkunni sem öllu ræður í flokknum en ekki tekist.  Hann á sennilega að vera svona cover song eða yfirbreiðsla til að fegra flokkinn.   Hylja skítakleprana. 

Þeir hafa sennilega leitað lengi áður en þeir fundu einn nógu hreinan og góðan til að fá í lið með sér.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 23.2.2012 kl. 11:14

3 Smámynd: Sindri Karl Sigurðsson

Sjá þvæluna í skrifunum hjá ykkur tveimur, Ásthildur og Doc. Einu orðinu er flokkurinn fullur af skít og síðan þegar endurnýjun á sér stað og það án stuttbuxnaliðsins þá er sá hinn sami að fela skítinn.....

Það er eitthvað að hjá ykkur.

Sindri Karl Sigurðsson, 23.2.2012 kl. 11:20

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já það má segja að það sé mikið að Sindri. Svona er búið að fara með besta fólk.  Þegar allt traust á stjórnvöld er horfið, og að horfa upp á bæði stjórnarandstöðu og ríkisstjórnina hvernig þetta fólk hagar sér. Þá brestur eitthvað inn í manni.  Ég hef reyndar mestu áhyggjurnar í þessu máli af Jóni Geir.  Hann á eftir að reka sig illilega á veggi.  Eins og ég sagði þekki ég nokkra mæta menn sem hafa reynt að færa flokkinn aftur til fyrri tíma, en verið ofurliði bornir af elítunni sem þarna ríkir. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 23.2.2012 kl. 11:36

5 Smámynd: Sigrún Jóna

Ég held að Jón Geir sé maður sem getur takið ákvarðanir sjálfur. Og lætur ekki neinn segja sér hvað hann á að segja eða halda. Annars á það allt eftir að kom í ljós, og svo verða sjálfsagt aðrir í framboði.

Hvað skítinn varðar hjá XD þá er hann og hefur verið stærsti flokkurinn svo þessi "skítur" er þá um allt land og hjá ansi mörgum.

En hvað mig varðar, er enginn munur á kúk eða skít. Flokkarnir hafa bara mismunandi bókstaf. 

Alls staðar eru hagsmunir og kaup á kosningarloforðum fyrir eitthvað annað sem kemur sér betur.

Sigrún Jóna , 23.2.2012 kl. 13:20

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Jóna mín ég er alveg viss um að Jón Geir er stekur maður og fyrir sinn hatt.  En ég get alveg sagt þér að það eru fleiri.  Einn af okkar bestu aflaklóm fór á landsfund hér um árið til að reyna að fá sjálfstæðisflokkinn til að skoða stöðu sjávarútvegsins.  Hann hefði allt eins getað klappað í stein.  Þetta er maður sem er bæði mikil aflakló og reglulega staðfastur maður.  Ég veit um fleiri slíka.  Málið er að þeir sem ráða flokknum vilja ekki hlusta á grasrótina.  Það er liðin tíð.  Þegar ég tala um skít á ég við þau hneykslismál sem forystumenn sjálfstæðismanna bera með sér alla leið inn í sali alþingis.  Að það skuli ekki vera búið að skipta út þessu fólki sýnir ákveðið ábyrgðarleysi þeirra sem kjósa þennan flokk.  En það má eitthvað mikið breytast til að hann verði hér eins og áður stétt með stétt, flokkur fólksins. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 23.2.2012 kl. 13:43

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sterkur átti þetta að vera.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 23.2.2012 kl. 13:44

8 Smámynd: Sigrún Jóna

Já, sammála þér Ásthildur.

En það er sami skíturinn hjá hinum öllum flokkunum

Sigrún Jóna , 23.2.2012 kl. 13:49

9 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já nákvæmlega mín kæra.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 23.2.2012 kl. 17:01

10 Smámynd: Anton Þór Harðarson

Doktor E og Ásthildur, hvernig í ósköpunum ætlist þið til að það verði breytingar í íslenskum stjórnmálum, með því að ráðast strax á alla aðra sem hafa þor og vilja til að ganga fram og reyna að koma með eitthvað nýtt blóð og starfshætti í pólitík.

Ásthildur dæmið þitt um aflaklóna (guðjón) sýnir bara að þegar fólk sem gefst upp þegar á móti blæs innan þess flokks sem það telur sig passa best við, þá leysir það engan vanda að hlaupa til og stofna nýjan flokk, hver eru áhrif frjálslynda flokksins, akkurart engin, guðjón hefi örugglega getað haft meiri áhrif til langframa innan sjálfstæðisflokksins, heldur en hann hafði með þessu frjálslynda brölti.

Ég hef aldrei þekkt eða hitt hann Geir Jón, en óska honum góðs gengis í komandi kostningum og vona að hann nái því sem hann stefnir að, að hafa áhrif á stefnu þess flokks sem han hefur ákveðið að starfa með. Hann hefur sýnt það í störfum sínum fyrir lögregluna að hann er stefnufastur og maður fólksins, og það er þannig fólk sem við þurfum í stjórnmálin, en ekki smákóngar sem gefast upp við mótlæti og hlaupa til og stofna nýjan flokk uppgjafasinna

Anton Þór Harðarson, 24.2.2012 kl. 07:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband